Í hádeginu í dag: Samfélagsleg ábyrgð viðskiptalífsins

Gammablossi af stjornuskodun.blog.is

Gammablossi af stjornuskodun.blog.is

Gammablossar ReykjavíkurAkademíu er hádegisfyrirlestraröð með gagnrýnum og hressandi fyrirlestrum og einn er í dag, í hádeginu: Salvör Nordal heimspekingur fjallar um  „Samfélagsleg ábyrgð viðskiptalífsins.  – Hugleiðing um bankahrun og Milton Friedman“ . Fyrirlesturinn er í útsýnissal ReykjavíkurAkademíu að Hringbraut 121,  kl. 12:05-13:00.

Allir miklu meira en velkomnir!

[Gammablossar myndast í hamfarakenndum ævilokum massa – mikilla sólstjarna. Þeir geta orðið gríðarlega bjartir og sjást langt að].


Kaldhæðni kapítalismans

corruptionUm daginn, eða 13. janúar s.l. var haldinn hádegisfundur á vegum Eþikos, miðstöðvar Íslands um samfélagsábyrgð fyrirtækja og sérlega áhugavert var erindi Jóns Ólafssonar heimspekings og forseta félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, en erindið var beitt og kallaðist Launhæðni, kaldhæðni og samfélagsbreytingar. Annað gott erindi hélt Jón Gunnar Bernburg, dósent í félagsfræði H.Í. um Siðrof og samfélagsbreytingar og svo sátu Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Ólafur Stephensen í pallborði. Ævar Kjartansson á staðnum til að taka erindin og umræðurnar upp fyrir Ríkisútvarpið, Í heyranda hljóði: http://dagskra.ruv.is/ras1/4431857/2009/01/27/


Samfélagsábyrgð fyrirtækja á Íslandi

Heimildarmyndin the Corporation lýsir hinu kapítalíska kerfi sem geðsjúklingi

Heimildarmyndin the Corporation lýsir hinu kapítalíska kerfi sem geðsjúklingi

EÞIKOS -Miðstöð Íslands um samfélagsábyrgð fyrirtækja stendur fyrir hádegisfundi þriðjudaginn 13. janúar kl. 12:00-13.15 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, Reykjavík sem ber yfirskriftina: Siðrof eða siðfrestir? Þjóð á krossgötum. Þar mun Dr. Jón Gunnar Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands flytja erindið Siðrof og samfélagsbreytingar, og Dr. Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, erindið Launhæðni, kaldhæðni og siðleysi. Á eftir verða umræður og í pallborði sitja Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir, alþingismenn og Ólafur Stephensen, ritstjóri Morgunblaðsins. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. (meira …)


EÞIKOS: Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja í nýju Íslandi

Lagadeild Háskólans í Reykjavík og Eþikos- Miðstöð Íslands um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja stendur fyrir hádegisfundi miðvikudaginn 5. nóvember kl. 12.00-13.15 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2.

Sjá dagskrá hádegisfundarins hér: malthing-hid-nyja-island