Á vef Umís, Environice má finna góðar og gagnlegar skýringar á lykilhugtökum í umhverfismálum okkar tíma. Meðal annars þessa fínu klausu um sjálfbæra þróun, og eins gott að glöggva sig á grundvallaratriðum núna þegar Paul Hawken er að koma til að ræða um sjálfbæra þróun á Íslandi. Sjá: www.environice.is og ítarefni á: http://www.samband.is/dagskra21/template1.asp?Id=748&sid=133
Sjálfbær þróun, eða Sustainable Development, eins og hugtakið nefnist á ensku, er venjulega skilgreind sem „þróun sem gerir okkur kleift að mæta þörfum okkar, án þess að stefna í voða möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum”. Hér er með öðrum orðum átt við þróun sem getur haldið áfram, þ.e.a.s. þróun sem er „gerð til að endast“. (meira …)










