Sprotar og afleggjarar

imagesEff2 Tecnologies, sem er hugbúnaðarsproti sem er svokallað “spin-off” eða afleggjari frá Database Lab Háskólans í Reykjavík, vann frumkvöðlakeppni Innovit, Gulleggið, í fyrra, vann nú nýsköpunarverðlaun í Genius keppninni í Austurríki í ár fyrir Videntifier Forensic hugbúnað sem auðveldar t.d. lögreglu að finna ólöglegt efni, s.s. klámefni, á netinu, með háþróaðri minnislausn, en lausnin hefur líka verið kynnt sem möguleg forvarnarlausn fyrir foreldra í framtíðinni, sjá heimasíðu sprotans: http://eff2.net/


Handverk og hönnun á Íslandi

Oddný Jósefsdóttir  Sporður  Línakradalur  531 Hvammstangi  +354 451 2598  +354 861 6390  oddajos@visir.is

Oddný Jósefsdóttir Sporður Línakradalur 531 Hvammstangi +354 451 2598 +354 861 6390 oddajos@visir.is

Frábær bæklingur með myndum og upplýsingum um íslenska hönnun og handverk var gefinn út fyrir jólin, en rann út eins og heitar lummur og erfitt að nálgast hann. En það er hægt að nálgast hann á netinu, og þótt jólin séu búin, þá gefast önnur tækifæri til að gefa góða gjöf og gefa Íslandi gjöf, sjá http://handverkoghonnun.is


SiglÓ ehf þróar pakka til að senda á hamfarasvæði

SiglÓ ehf er að þróa pakka sem inniheldur vatn og prótein sem dugar fullorðnum í sólahring til að senda á hamfarasvæði sem fyrstu aðstoð. Rauðakrossinn, UNICEF og Hjálparstofnun kirkjunar telja að pakkinn geti reynst mörgum dýrmætur þegar á reynir.

Þeir sem standa að þróuninni horfa til þess að nýta auðlindir við bæjardyrnar og vinna vannýtt hráefni sem fellur til t.d. í kjöt- og fiskvinnslum að ógleymdu öllu vatninu sem streymir úr Héðinsfjarðagöngum. (more…)


ORF Líftækni. Handhafi nýsköpunarverðlauna 2008

ORF Líftækni hlaut Nýsköpunarverðlaunin 2008, en það eru Rannís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Útflutningsráð sem veita þessi verðlaun árlega. Verðlaunin voru afhent á Nýsköpunarþingi 28. febrúar s.l. en það kom í hlut heilbrigðisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, að afhenda þau að þessu sinni.

ORF Líftækni var stofnað í árslok 2000 af frumkvöðlunum Birni Lárus Örvar, Einari Mäntylä og Júlíusi B Kristinssyni, ásamt RALA og þáverandi Iðntæknistofnun. Í árslok 2005 og á árinu 2006 komu svo að fyrirtækinu nýir fjárfestar sem gerðu fyrirtækinu kleyft að flýta enn frekar tækniþróun þess. ORF hefur skipað sér í fremstu röð í erfðatækni byggs. Orfeus- kerfi fyrirtækisins er nú eitt öflugasta og sérstæðasta kerfið í svokallaðri sameindaræktun, þ.e. framleiðslu sérvirkra proteina í plöntum. Afurðir fyrirtækisins eru ISOkine- vaxtarþættir fyrir stofnfrumurannsóknir, krabbameinsrannsóknir, vefjaverkfræði og rannsóknir í ónæmisfræði. Vaxtarþættir finnast m.a. í mannslíkamanum þar sem þeir gegna mikilvægu hlutverki við stjórnun fruma og sérhæfingu. Ennfremur eru margir vaxtarþættir notaðir í lyf eða í lyfjaþróun, og nýverið er farið að prófa notagildi þeirra í snyrtivörur. Kaupendur eru því vísindamenn, rannsóknarstofnanir, sjúkrahús, fyrirtæki í lyfjaþróun eða þróun snyrtivara. ORF hefur nú þegar kringum eitt hundrað mismunandi vaxtarþætti í framleiðsluferli sínu sem gerir ORF Líftækni að stærsta fyrirtæki á sínu sviði í heiminum. Nú þegar er ORF í samningum við leiðandi rannsóknarstofnanir í N-Ameríku á sviði ónæmisfræði og stofnfrumurannsókna um notkun ISOkine™ vaxtarþátta í rannsóknum þeirra.

(more…)


Fjölblendir ehf

Fjölblendir ehf. er framsækið þróunarfyrirtæki í stöðugri sókn. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun á eldsneytiskerfum byggðum á TCT tækninni. “Total Combustion Technology” eða albrunatækni.

TCT kerfið er uppfinning Kristjáns B. Ómarssonar en hann er aðalhönnuður fyrirtækisins. Markmið fyrirtækisins er að hanna kerfi sem eru ódýr í framleiðslu og leiða til minni útblástursmengunar en þekkist með núverandi kerfum.

Gífurleg reynsla og þekking hefur safnast upp innan Fjölblendis í gegnum árin. Fyrirtækið ræður nú yfir getu til að sinna vöruþróunarferlinu allt frá frumhugmynd til þrautprófaðra og starfhæfra frumgerða.

Fyrirtækið einbeitir sér sem stendur að þróun TCT eldsneytiskerfa fyrir smávélar og hefur þegar yfir að ráða tveimur alheimseinkaleyfum.

Sjá nánar: http://tct.is/


The Company VAKI: Fish and Hi-tech

VAKI is active in two main fields, in which the key words are “fish” and “hi-tech”. What the products have in common is that they give the user accurate information about the production or migration pattern and so facilitate planning and decision-making. They also raise the level of automation and contribute towards increased efficiency in both farming and processing. (more…)


Stiki. Consulting- and Software Development Company

Stiki is a consulting- and software development company which specializes in data protection, computer security and information systems security.
(more…)


Hugbúnaðarfyrirtækið Fuglar Ehf

Fuglar Ehf er öflugt og framsækið hugbúnaðarfyrirtæki.

Fuglar ehf. var stofnað árið 1998 af honum Helga Einarssyni.
Fyrstu verkefni Fugla ehf. var vinna við lífeyrissjóðskerfið Kríu og afgreiðslukerfið Krummi. Lá því beinast við að kalla fyrirtækið Fuglar. Þetta hefur einnig leyst það vandamál að nefna ný kerfi því þá þarf einungis að velja viðeigandi fuglanafn og málið er leyst.

Við höfum mikla reynslu af hönnun og forritun á stórum og smáum hugbúnaðarverkefnum. Einnig getum við gert úttekt á tölvukerfum og gert tillögur um úrbætur og breytingar og aðstoðað við útboð.
Fuglar taka að sér verk í verktöku gegn tilboði en einnig höfum við fjölmargar lausnir sem gætu hentað þér. Við erum 9 starfsmenn og höfum aðsetur á 4. hæð að Skeifunni 19.

Sjá nánar: http://www.fuglar.com


Að segja góða sögu: Heyr heyr ehf

Óskum eftir ömmum og öfum

Við óskum eftir ömmum og öfum með góða frásagnarhæfni og sögu að segja.
Ömmur og afar kunna margar sögur, jafnvel af ömmum sínum og öfum.
Þetta gætu því verið sögur sem spanna síðustu þrjár aldir,
sem sagt óskráðar þjóðsögur.
Þjóðsaga er frásögn sem hefur gengið sem munnmælasaga meðal alþýðu
oft á tíðum lengi, jafnvel öldum saman. (more…)


3 X Technology

3X Technology hlaut Íslensku sjávarútvegsverðlaunin sem veitt voru samfara Sjávarútvegssíningunni sem haldin var í Smáranum 2.-4. október

3X Technology hlaut verðlaun sem besti íslenski vélbúnaðarframleiðandinn í flokki stærri fyrirtækja. Verðlaunin voru afhent samfara Íslensku sjávarútvegssýningunni. Stofnað var til  Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna í tengslum við Íslensku sjávarútvegssýninguna, og voru þau nú veitt í fjórða sinn.

Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa náð framúrskarandi árangri á ýmsum sviðum sjávarútvegsins, svo sem fiskveiðum, útgerð, fiskvinnslu og framleiðslu tækjabúnaðar.  Á sýningunni kynnti fyrirtækið blóðgunar- og kælitanka sem tryggja betri meðhöndlun á hráefni um borð í fiskiskipum.

Einnig voru kynnt marningskerfi og þá m.a. hvernig hægt er að vinna gæða marning úr fiskhryggjum og auka þar af leiðandi verðmæti þessa vannýtta hluta fiskjarins umtalsvert með litlum tilkostnaði.

3X Technology hefur undanfarin ár unnið að þróun sjálfvirkni í saltfiskvinnslu með fremstu saltfiskframleiðendum landsins, var afrakstur þessarar þróunar einnig kynntur á sýningunni.

http://www.3x.is/


Eco-túrismi, Borgarfirði Eystri

Í verkefnisáætlun þessari ”BORGARFJÖRÐUR EYSTRI fyrir ferðamenn framtíðarinnar” er að finna stefnu, markmið og framkvæmdaáætlun Ferðaþjónustunnar Álfheima og samstarfsaðila. Unnið er útfrá hugmyndafræði ECO-túrisma um virðingu fyrir náttúru og jákvæð áhrif á nær samfélag. Umhverfi og samfélag á Borgarfirði er byggt á sama grunni þ.e. virðingu fyrir náttúru, náttúruöflum og sérstæðu mannlífi. Samfélagið á Borgarfirði hefur frá örófi alda lifað á gæðum náttúru svæðisins með sjósókn, fiskvinnslu og sauðfjárrækt. Blikur eru á lofti í atvinnumálum sökum niðurskurðar aflaheimilda og ljóst er að ef ekki koma fram ný atvinnutækifæri og störf mun fólki fækka ennfrekar á staðnum sem mun veikja grunngerð samfélagsins. Verkefnisáætlunin gengur út á það að nýta gæði náttúrunnar og um leið þekkingu einstaklinga og hugvit til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu.  (more…)