Í kvöld: Ímyndir Íslands: íslensk hönnun, kynjamynir og nýir víkingar

Furðumynd úr handriti af vef ímynda Íslands: inor.is:"All human cultures articulate, situate themselves by categorizing the world. Such a predicative act necessarily involves a distinction between that which is allowed into the sphere of culture, and that which is excluded; the circumscription of cultural identity proceeds by silhouetting it against a contrastive background of Otherness." - Leerssen & Corby.

Furðumynd úr handriti af vef ímynda Íslands: inor.is:"All human cultures articulate, situate themselves by categorizing the world. Such a predicative act necessarily involves a distinction between that which is allowed into the sphere of culture, and that which is excluded; the circumscription of cultural identity proceeds by silhouetting it against a contrastive background of Otherness." - Leerssen & Corby.

Rannsóknarhópurinn Ímyndir Íslands, sjá áhugaverða heimasíðu þeirra: www.inor.is, heldur fund í kvöld klukkan átta í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð: Ímyndir Íslands og aldahvörf. Dagskrá sem hér segir:

Katla Kjartansdóttir: Hinir nýju víkingar
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir: “Íslensk hönnun” sem minjagripur
Þorgerður Þorvaldsdóttir: Kynjaímyndir í fortíð, nútíð og framtíð?

Athugasemdir og viðbrögð:
Guðmundur Oddur Magnússon

Sjá nánar á www.inor.is
www.akademia.is


Ríki Vatnajökuls


Ferðaþjónustu-, menningar- og matvælaklasinn Ríki Vatnajökuls var formlega stofnaður sumarið 2007. Innan klasans starfa nú 74 aðilar (einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir). Sameiginlegt markið er að efla atvinnu- og mannlíf á suð-austurlandi með þverfaglegu samstarfi um samtvinningu ferðaþjónustu, menningar og matvælaframleiðslu.

Ríkis Vatnajökuls ehf. , er ferðaþjónustu-, matvæla- og menningarklasi Suðausturlands. Ríki Vatnajökuls er afrakstur af klasastarfi sem staðið hefur yfir í Hornafirði frá árinu 2004 og HH verkefnis sem haldið var á vegum Útfluttningsráðs Íslands í byrjun árs 2007. Nýstofnaður Vaxtasamningur Austurlands og vilji Sveitarfélagsins Hornafjarðar styður enn frekar þann ásetning heimamanna að stofna til formlegs félags ferðaþjónustuaðila og matvælaframleiðenda sem vinni að sameiginlegum hagsmunum þátttakenda með skýrri framtíðarsýn og stefnu. Fjöldi aðila hefur komið að undirbúningi en hluthafar félagsins eru 40. Þátttakendur í Ríki Vatnajökuls meta ávinning samstarfs fram yfir sundurlyndi. Félagið er því samstarfsvettvangur keppinauta aukinheldur sem fjöldi annarra kemur að málinu. Þeir aðilar sem hafa áhuga á að starfa innan Ríkis Vatnajökuls eru hvattir til að setja sig í samband við Rósu Björk Halldórsdóttur framkvæmdastjóra Ríkis Vatnajökuls. Sjá nánar á http://www.hornafjordur.is/

Sveitarfélagið Hornafjörður og Vaxtasamningur Austurlands hafa stutt við verkefnið.


Ellefu áhugaverðar rannsóknarskýrslur um ferðamál á Íslandi

Hér er listi yfir þær skýrslur sem Rannsóknarmiðstöð Ferðamála hefur gefið út á síðustu árum. Listinn er birtur með góðfúslegu leyfi forsvarsmanns Rannsóknarmiðstöðvarinnar, Edwards H. Huijbens. Ellefu skýrslur eru í ókeypis vefútgáfu, en hægt að nálgast útprentaðar skýrslur á bókasöfnum og víðar. Frekari upplýsingar eru á vef Rannsóknarmiðstövar Ferðamála http://www.fmsi.is/


Eyrún Jenný Bjarnadóttir, 2008: Uppbygging ferðaþjónustu utan háaannar – árangur af átaksverkefninu „Komdu norður!“ Í Rannsóknir í Félagsvísindum IX. Reykjavík: Félagsvísindadeild Háskóla Íslands, p. ….

Eyrún Jenný Bjarnadóttir, 2008: Ferðavenjur Íslendinga um Norðurland að vetri. Akureyri: Rannsóknamiðstöð ferðamála (bls. 41). Ókeypis vefútgáfa

Edward H: Huijbens 2008: Markaðssetning svæða á Íslandi – Mikilvægi svæðisbundinna tengslaneta og samskipta þeirra í millum. Í Rannsóknir í Félagsvísindum IX. Reykjavík: Félagsvísindadeild Háskóla Íslands, p. ….

Edward H. Huijbens og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir 2008: Svæðisbundin markaðssetning: úttekt á aðferðum og leiðum. Akureyri: Rannsóknamiðstöð ferðamála og Hólaskóli – Háskólinn á Hólum (bls. 72). Ókeypis vefútgáfa (more…)


Ferðamálanám á Hólum

Ferðamáladeild Hólaskóla býður upp á háskólanám í ferðamálafræði með áherslu á náttúru og menningu, annarsvegar diplomanám (1 ár) og hinsvegar til B.A. gráðu (3 ár).

Ferðamáladeild Hólaskóla vill með kennslu, rannsóknum, verkefnum og víðtæku samstarfi við greinina, stuðla að ábyrgri uppbyggingu og þróun ferðaþjónustu um land allt. Áherslan á ferðamálabraut hefur frá upphafi verið á ferðaþjónustu sem tengist menningu og náttúru viðkomandi svæðis. Það er ferðaþjónusta sem byggir á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og hefur það m.a. að markmiði að stuðla að aukinni þekkingu bæði gesta og gestgjafa á náttúru- og menningarverðmætum okkar. (more…)


Matarkistan Skagafjörður – þróunarverkefni við ferðamáladeild

Hvað er Matarkistan Skagafjörður?
Matarkistan Skagafjörður er samvinnuverkefni á héraðsvísu. Það eru skagfirskir matvælaframleiðendur, ferðaþjónustuaðilar, veitingahús og verslanir, auk Háskólans á Hólum og Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem vinna saman að þessu verkefni.

Markmið verkefnisins Matarkistan Skagafjörður er að finna leið til að þróa matarferðaþjónustu (culinary tourism) í dreifbýli á Íslandi og um leið að vekja athygli á skagfirskri matvælaframleiðslu hérlendis og erlendis.

Verkefnið er héraðsbundið í Skagafirði, en markmiðið er að sú reynsla og þekking sem til verður í verkefninu geti nýst öðrum héruðum landsins í þróun matarferðaþjónustu.
Áhersla er lögð á að kynna gæði og fjölbreytni skagfirskrar framleiðslu og matargerðar fyrir ferðamönnum, innlendum og erlendum, og er merki Matarkistunnar notað til að draga athyglina að skagfirskum mat og matargerð.



Sjálfbær ferðamennska á norðurslóðum : NEST

Á heimasíðu Háskólaseturs Hornafjarðar á Höfn er að finna þessar upplýsingar um sérlega áhugavert rannsóknarverkefni og tengslanet um sjálfbæra ferðamennsku:

Sjálfbær ferðamennska á norðurslóðum: Möguleikar þjóðgarða og friðlýstra svæða til framþróunar byggðar á jaðarsvæðum. (e. Northern Environment for Sustainable Tourism – NEST)

Samstarfsaðilar:

Ísland:
- Háskóli Íslands: Háskólasetrið á Hornafirði (verkefnisstjórn); Rannsóknastofnun HÍ
- Sveitarfélagið Hornafjörður
- Sveitarfélagið Skaftárhreppur
- Þróunarfélag Austurlands
- Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
- Umhverfisstofnun (more…)


Bréf frá Peter Weiss Menntatengda ferðaþjónustu

Háskólasetur Vestfjarða hefur lagt áherðslu á grein innan ferðaþjónustu, sem heitir Menntatengd ferðaþjónusta (Bildungstourismus, dannelsestourisme, educational tourism). (Ath. ekki sama og menningartengd ferðaþjónusta). Þetta er risastór grein í t.d. Þýskalöndum og í Danmörku, sbr. nýrri þróun í lýðháskólahreyfingu. Það virðist hins vegar ekki vera neitt á teikniborðinu hér á landi. Háskólasetur Vestfjarða hefur haldið eitt námskeið á meistarastigi í samvinnu við HÍ fyrir tveimur árum, til að vekja athygli á þessu. Ég tel að okkar sumarháskólar, sumarnámskeið séu dæmi um menntatengda ferðaþjónustu.

Dæmi: Kafaranámskeið í Ísafjarðardjúpi: Flott þriggja vikna frí, þú kemur heim með kafarakunnáttu/-réttindi.
Dæmi: Taka bílpróf í kabríó/roadster á Majorku: Flott þriggja vikna frí, sól og strand og bílpróf í leiðinni.
Dæmi: Taka sumarnámskeið hjá Háskólasetri Vestfjarða, frábær upplevelse, koma heim og fá 6 ECTS metna til eininga.

Bestfjarðakveðja – Best Fjords Wishes

Peter Weiss


Bréf frá Guðmundi Páli Ólafssyni um fræðandi ferðaþjónustu

Takk fyrir frjóa umræðu.

Tek undir með Önnu Karlsdóttur að nota ekki orðið „ferðaiðnað“.
Neikvætt hugtak en samt í þeim anda sem ferða-iðnaður hefur lengi
verið rekinn hér þ.e. að dæla ferðamönnum endalaust til landsins án
fyrirhyggju. Nú þarf að vanda til verka og byggja á gæðum,
listamatseld og þoskuðu minjagripahandverki. Afar mikilvægt að
ferðaþjónustan haldi sig eins fjarri iðnaði og hægt er í hugsun, orði
og verki. Við erum rétt að skrapa yfirborðið á ferðþjónustu framtíðar. Ef til
vill er það sem ég hef freistast til að kalla fræðandi ferðaþjónustu -
ekki menningartengdri (endilega) það sama og „educational tourism“ -
þekki það ekki ekki en hugmyndin var sú að slík ferðamennska gengi út
á hreinræktaðar fræðsluferðir, aðallega fyrir gönguhópa.
Dæmi 1. Náttúrufyrirbæri: Gljúfur og gljúfrabúar. Auglýst X daga
ferð til að skoða gljúfur í einhverjum landshluta. Gengið um gljúfur,
við gljúfur og fossa, jarðlög lesin, jarðfræði, landmótun – hvernig
mynduðust gljúfrin, fossarnir o.s.frv.? Markmiðið er að kenna almennum
ferðamanni að skilja, læra að lesa landslag og hafa hugtök á hreinu -
helst að geta talað um þessa hluti. Afar heppilegt fyrir skólafólk á
öllum aldri, til að opna hugarfylgsni og hópefli.
Þetta má líka kalla Víðernisferðamennsku. Hygg að hér þurfi að koma
mikil heildstæð úttekt og samvinna margra til að þetta þroskist vel og
hratt.
Dæmi 2. Náttúruljósmyndun. Valin verkefni: fuglar, jarðmyndanir,
landslag, gróður, uppblástur … Hentar fólki á öllum aldri, enda gott
veganesti að hafa vald á slíku. Þessi þjónusta er ekki gefins og á að
vera arðbær. Nú þegar er fuglaljósmyndun kennd í slíkum anda.
Dæmi 3: Myndlist – óendanleg viðfangsefni.
Munum að ef hér er gaman, frjótt umhverfi og bæði okkur og börnunum
líður vel þá streyma ferðamennirnir hingað.

Lagt í púkkið, kveðjur,

Guðmundur Páll Ólafsson


Bréf frá Önnu Karlsdóttur mannvistalandfræðingi

Ég er svo fegin að neistahópurinn notar orðið ferðaþjónusta og ekki ferðamannaiðnaður (eins og fjölmiðlafólk gerir því miður af því það er sagt travel industry á ensku). Ferðaþjónusta er ekki eðli málsins samkvæmt iðnaður nema sá hluti hennar sem beint framleiðir mat eða minjagripi eða annað neytendavænt. Ég hef yfirleitt notað orðið fræðslutengd ferðaþjónusta við educational tourism þar eð nám er ekki endilega menntun að mínu viti. Varð að læða þessu inn.

Mér finnst sjálfbær ferðaþjónusta vera frekar óplægður akur á Íslandi eins og menntatengd/fræðslutengd ferðaþjónusta. Snæfellsnes er eina svæði heims sem hefur heildstæða Green Globe vottun en aðeins eitt starfandi ferðaþjónustufyrirtæki er vottað – mér finnst það svolítið merkilegt.

Ég er með nemendahóp sem er að rannsaka afhverju?

Bestu kveðjur að sinni,

Anna Karlsdóttir
Assistant Professor, Human Geography and Tourism studies
Department of Life and Environmental Sciences
University of Iceland