Vorþing Þjóðfræðistofu á Hólmavík

Ástarstafur af síðu Galdrasafns á Ströndum. Fiðringur ástarinnar kemur í menn á vorin og gott að nýta sér þann kraft til fræðaiðkunar

Ástarstafur af síðu Galdrasafns á Ströndum. Fiðringur ástarinnar kemur í menn á vorin og gott að nýta sér þann kraft til fræðaiðkunar

Laugardaginn 11. apríl 2009 mun Þjóðfræðistofa blása til vorþings og kynna ýmis verkefni sín og samstarfsmanna. Fjallað verður m.a. um þjóðerni og íróníu. Sýnd verða sýnishorn úr heimildamyndum í framleiðslu Þjóðfræðistofu, svo sem Leitin að Gísla Suurinpojan, sem fjallar um ferð finnsks þjóðfræðings á slóðir Gísla sögu Súrssonar; Hannes Lárusson myndlistarmaður og forstöðumaður Íslenska bæjarins og Magnús Rafnsson sagnfræðingur og stjórnarformaður Strandagaldurs stíga á stokk og ræða íslenskan torfbæjararf. Þá mun Dr. Sigurjón Baldur Hafsteinsson mannfræðingur og lektor í safnafræðum við HÍ kynna þá nýju námsbraut. Að lokum verður fjallað um hinn goðsagnakennda mjöð og gestum boðið að bragða á.

Vorþingið mun fara fram á Café Riis á Hólmavík og hefst klukkan 13.30.

Allir áhugamenn velkomnir og sérstaklega þeir sem hafa upplýsingar um torfbæi á Ströndum. Frekari upplýsingar í dir@icef.is og www.icef.is .


Þjóðfræðistofa á Hólmavík

Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem starfrækt er á Ströndum og sinnir rannsóknum og miðlun á landsvísu. Fyrirhugað er að hún verði sjálfbær vinnustaður háskólamenntaðra starfsmanna sem hafa menntun í íslenskum fræðum, þjóðfræði, sagnfræði og miðlun menningarsögu. Innan ramma Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og miðlunarverkefnum um íslenska þjóðfræði og margvíslegum samvinnuverkefnum á sviði þjóðfræði, menningar og lista.

Á meðal fjölbreyttra verkefna þjóðfræðistofu eru rannsóknir á ímynd Íslendinga, matarmenningu og gerð heimildarmyndar um slóðir Gísla sögu Súrssonar. Jafnframt kemur Þjóðfræðistofa að upplýsingamiðstöð um íslenska þjóðtrú og þjóðfræði, þar sem veittar eruupplýsingar og fyrirspurnum svarað frá fjölmiðlum, listamönnum, stofnunum og einstaklingum, bæði hér á landi og erlendis frá.

http://www.icef.is/


Fræðasetur Háskóla Íslands á landsbyggðinni

Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands er rannsókna- og þjónustustofnun sem heyrir undir Háskólaráð. Stofnunin byggist á fræða- og rannsóknasetrum Háskóla Íslands á landsbyggðinni sem eru faglega sjálfstæðar einingar. Stofnunin er vettvangur samstarfsverkefna Háskólans við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni. Markmið stofnunarinnar er enn fremur að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni, auka möguleika almennings til menntunar og styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf.

Frá árinu 1998 hefur á vegum rektors Háskóla Íslands verið unnið að því að efla tengsl skólans við landsbyggðina, m.a. með því að fjölga rannsókna- og fræðasetrum Háskóla Íslands úti á landi. (more…)