Á Fræðsluvef Matís, sem enn er í vinnslu, má finna áhugaverðuar upplýsingar um m.a. rekjanleika, verkunar- og geymsluaðferðir sjávarfangs.
Matís ohf (áður Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins) hefur stundað rannsóknir og unnið margvísleg verkefni fyrir íslenskan sjávarútveg og fiskiðnað í áratugi. Niðurstöður þessara rannsókna og verkefna voru birtar með margvíslegum hætti, t.d. í skýrslum, pistlum, ritum og handbókum, auk námskeiða og ráðgjafar til fyrirtækja og einstaklinga.
Smám saman safnaðist saman mikil vitneskja um fisk, hvernig best er að meðhöndla hann, vitneskja um helstu verkunar- og geymsluaðferðir á fiski og öðrum matvælum. Sumt af þessu er byggt á niðurstöðum úr rannsóknum sem gerðar voru á Rf og verður haldið áfram á Matís ohf, annað er þekking sem starfsfólk hefur aflað sér í gegn um áralangt samstarf við fólk í sjávarútvegi og fiskiðnaði, sem og innlenda og erlenda vísindamenn. Þessum fróðleik um fisk og flest það sem honum við kemur er nú miðlað á Fræðsluvef Matís, sem þar með leysir af hólmi eldra vefsetur um sama efni, sem hét Á Vísan að róa.
Sjá nánar:http://fraedsluvefur.rf.is/
