Nýr vefur Matvælastofnunar

Á nýjum vef Matvælastofnunar eru upplýsingar um eftirfarandi og annað: Áburður, Alifuglarækt, Búfjárræk, Dýralæknar, Dýravernd, Dýrasjúkdómar, Fiskeldi, Fiskrækt, Fóðureftirlit, Hvalveiðar, Innflutningur, Lyf og lyfjasala, Lífrænn landbúnaður, Loðdýrarækt, MATVÆLI, Náttúruvernd, Plöntur, Sáðvara, Sláturhús, Svínarækt, Útflutningur, Viðarumbúðir. . .

Sjá: http://www.mast.is/logogreglur/slaturhus


Ellefu áhugaverðar rannsóknarskýrslur um ferðamál á Íslandi

Hér er listi yfir þær skýrslur sem Rannsóknarmiðstöð Ferðamála hefur gefið út á síðustu árum. Listinn er birtur með góðfúslegu leyfi forsvarsmanns Rannsóknarmiðstöðvarinnar, Edwards H. Huijbens. Ellefu skýrslur eru í ókeypis vefútgáfu, en hægt að nálgast útprentaðar skýrslur á bókasöfnum og víðar. Frekari upplýsingar eru á vef Rannsóknarmiðstövar Ferðamála http://www.fmsi.is/


Eyrún Jenný Bjarnadóttir, 2008: Uppbygging ferðaþjónustu utan háaannar – árangur af átaksverkefninu „Komdu norður!“ Í Rannsóknir í Félagsvísindum IX. Reykjavík: Félagsvísindadeild Háskóla Íslands, p. ….

Eyrún Jenný Bjarnadóttir, 2008: Ferðavenjur Íslendinga um Norðurland að vetri. Akureyri: Rannsóknamiðstöð ferðamála (bls. 41). Ókeypis vefútgáfa

Edward H: Huijbens 2008: Markaðssetning svæða á Íslandi – Mikilvægi svæðisbundinna tengslaneta og samskipta þeirra í millum. Í Rannsóknir í Félagsvísindum IX. Reykjavík: Félagsvísindadeild Háskóla Íslands, p. ….

Edward H. Huijbens og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir 2008: Svæðisbundin markaðssetning: úttekt á aðferðum og leiðum. Akureyri: Rannsóknamiðstöð ferðamála og Hólaskóli – Háskólinn á Hólum (bls. 72). Ókeypis vefútgáfa (more…)


Frétt Rúv um nýja líftækni- og matvælarannsóknasmiðju á Sauðárkróki

Horfa í sérglugga Ný líftæknismiðja á Sauðárkróki


Ferðamálanám á Hólum

Ferðamáladeild Hólaskóla býður upp á háskólanám í ferðamálafræði með áherslu á náttúru og menningu, annarsvegar diplomanám (1 ár) og hinsvegar til B.A. gráðu (3 ár).

Ferðamáladeild Hólaskóla vill með kennslu, rannsóknum, verkefnum og víðtæku samstarfi við greinina, stuðla að ábyrgri uppbyggingu og þróun ferðaþjónustu um land allt. Áherslan á ferðamálabraut hefur frá upphafi verið á ferðaþjónustu sem tengist menningu og náttúru viðkomandi svæðis. Það er ferðaþjónusta sem byggir á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og hefur það m.a. að markmiði að stuðla að aukinni þekkingu bæði gesta og gestgjafa á náttúru- og menningarverðmætum okkar. (more…)


Matarkistan Skagafjörður – þróunarverkefni við ferðamáladeild

Hvað er Matarkistan Skagafjörður?
Matarkistan Skagafjörður er samvinnuverkefni á héraðsvísu. Það eru skagfirskir matvælaframleiðendur, ferðaþjónustuaðilar, veitingahús og verslanir, auk Háskólans á Hólum og Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem vinna saman að þessu verkefni.

Markmið verkefnisins Matarkistan Skagafjörður er að finna leið til að þróa matarferðaþjónustu (culinary tourism) í dreifbýli á Íslandi og um leið að vekja athygli á skagfirskri matvælaframleiðslu hérlendis og erlendis.

Verkefnið er héraðsbundið í Skagafirði, en markmiðið er að sú reynsla og þekking sem til verður í verkefninu geti nýst öðrum héruðum landsins í þróun matarferðaþjónustu.
Áhersla er lögð á að kynna gæði og fjölbreytni skagfirskrar framleiðslu og matargerðar fyrir ferðamönnum, innlendum og erlendum, og er merki Matarkistunnar notað til að draga athyglina að skagfirskum mat og matargerð.



Sjálfbær ferðamennska á norðurslóðum : NEST

Á heimasíðu Háskólaseturs Hornafjarðar á Höfn er að finna þessar upplýsingar um sérlega áhugavert rannsóknarverkefni og tengslanet um sjálfbæra ferðamennsku:

Sjálfbær ferðamennska á norðurslóðum: Möguleikar þjóðgarða og friðlýstra svæða til framþróunar byggðar á jaðarsvæðum. (e. Northern Environment for Sustainable Tourism – NEST)

Samstarfsaðilar:

Ísland:
- Háskóli Íslands: Háskólasetrið á Hornafirði (verkefnisstjórn); Rannsóknastofnun HÍ
- Sveitarfélagið Hornafjörður
- Sveitarfélagið Skaftárhreppur
- Þróunarfélag Austurlands
- Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
- Umhverfisstofnun (more…)


Háskólasetur í Hveragerði

Háskólasetrið í Hveragerði vinnur að rannsóknum á eiginleikum og heilnæmi jarðhitabaða og náttúrlegum forsendum fyrir heilsuböðum á Íslandi. Markmið rannsóknanna er að efla heilsutengda ferðaþjónustu sem byggir á jarðhitaböðum og að styrkja markaðssetningu hennar með aukinni vísindalegri þekkingu. Setrið hyggst veita rekstraraðilum heilsubaða, eins og almenningslauga, náttúrulauga og leirbaða slíka rannsóknarþjónustu, sem einkum beinist að líffræðilegri virkni og heilnæmi jarðhitabaða.

Sjá nánar um rannsóknirnar á heimasíðu Háskólaseturs í Hveragerði: www.nedrias.is

Mynd af baðlaugalista á hverasíðu Háskólasetursins


Þjóðfræðistofa á Hólmavík

Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem starfrækt er á Ströndum og sinnir rannsóknum og miðlun á landsvísu. Fyrirhugað er að hún verði sjálfbær vinnustaður háskólamenntaðra starfsmanna sem hafa menntun í íslenskum fræðum, þjóðfræði, sagnfræði og miðlun menningarsögu. Innan ramma Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og miðlunarverkefnum um íslenska þjóðfræði og margvíslegum samvinnuverkefnum á sviði þjóðfræði, menningar og lista.

Á meðal fjölbreyttra verkefna þjóðfræðistofu eru rannsóknir á ímynd Íslendinga, matarmenningu og gerð heimildarmyndar um slóðir Gísla sögu Súrssonar. Jafnframt kemur Þjóðfræðistofa að upplýsingamiðstöð um íslenska þjóðtrú og þjóðfræði, þar sem veittar eruupplýsingar og fyrirspurnum svarað frá fjölmiðlum, listamönnum, stofnunum og einstaklingum, bæði hér á landi og erlendis frá.

http://www.icef.is/


Þekkingarsetur Þingeyinga

Þekkingarsetur Þingeyinga er símenntunar-, háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfar á grunni tveggja stofnana er sameinaðar voru árið 2006. Um er að ræða símenntunarmiðstöðina Fræðslumiðstöð Þingeyinga annars vegar og háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfaði einnig undir nafni Þekkingarseturs Þingeyinga fram að sameiningunni. Fræðslumiðstöðin hóf starfsemi árið 1999 og sinnti fullorðinsfræðslu og símenntunarstarfi í héraðinu en Þekkingarsetrið var stofnað árið 2003 samhliða Náttúrustofu Norðausturlands, sem starfar innan setursins. Starfssvæði Þekkingarsetursins er Þingeyjarsýslur en aðsetur þess er á Húsavík. Þekkingarsetur Þingeyinga býður upp á námskeiðahald, hefur milligöngu um námsleiðir og námsframboð fyrir fólk og vinnustaði og rekur háskólanámssetur með þjónustu og vinnuaðstöðu fyrir háskólanema á svæðinu. Einnig er setrið miðstöð rannsókna og hýsir til lengri og skemmri tíma fólk, stofnanir og fyrirtæki sem stunda rannsóknir í héraðinu.

Sjá nánar: http://www.hac.is


Snorrastofa í Reykholti

Snorrastofa er menningar- og miðaldasetur í Reykholti, sem komið hefur verið á fót til minningar um Snorra Sturluson. Stofnuninni er ætlað að sinna og stuðla að rannsóknum og kynningu á miðaldafræðum og sögu Reykholts og Borgarfjarðar sérstaklega. Húsnæði stofnunarinnar er við hlið hinnar nýju kirkju í Reykholti, en þar er gott bókasafn, skrifstofa, gestaíbúð fyrir fræðimenn og rithöfunda og vinnuaðstaða fyrir fræðastörf. Á vegum Snorrastofu eru haldin námskeið, ráðstefnur og fundir og settar upp sýningar er tengjast þessum viðfangsefnum. Meðal annars er stuðlað að fjölþjóðlegum og þverfaglegum rannsóknum er tengjast Íslandi, og þá ekki síst hvað varðar Snorra Sturluson.

Sjá nánar: http://www.snorrastofa.is/


Nýheimar á Höfn

Nýheimar eru miðstöð fjölbreyttrar starfsemi þar sem unnið er að því að leysa úr læðingi sköpunarkraft hvort sem um er að ræða við nám, leik eða störf. Nýheimar eru vettvangur til:

Að byggja upp þekkingu, hæfni og frumkvæði með því að bjóða upp á fjölbreytta möguleika til menntunar á framhalds- og háskólastigi; Að örva listsköpun og efla félagsauð og menningarlíf svæðisins ; Að vera aflvaki atvinnulífs á Suðausturlandi með því að bjóða upp á ráðgjöf auk aðstöðu til nýsköpunar; Að standa fyrir öflugu rannsókna og þróunarstarfi.

Nýheimar eru vettvangur þar sem samvinna ólíkra aðila veitir ráðrúm til nýsköpunar og eflir jafnframt atvinnu- og menningarlíf. (more…)