Fréttir berast daglega af áhugaverðum nýsköpunartilraunum út um allt land; dýrfisk hönnun á bátum og Landbúnaðarháskólinn opnar sig fyrir nýjum möguleikum og stofnsetur frumkvöðlasetur og býður upp á mjög áhugavert nám í framtíðarfræðum; sjá t.d. upplýsingar um Auðlindadeild skólans: http://www.lbhi.is/skipurit/audlindadeild þar sem sagt er frá mikilvægi þess að viðhalda og þróa íslenskar erfðaauðlindir í búfé og nytjajurtum og byggja upp sjálfbær framleiðslukerfi sem tryggja gæði og rekjanleika afurðanna frá framleiðanda til neytanda. Við skólann er líka boðið upp á nám í náttúru- og umhverfisfræði.
En svo er hjakkað í sama farinu og látið eins og þurfi endilega að eyðileggja Arnarfjörð og aðra firði, leita í örvæntingu að olíu og virkja á Bakka. Sjá næstu færslu.










