Matís opnar líftæknismiðju á Sauðárkróki

Þriðjudaginn 18. nóvember nk. kl. 16:30 mun Matís opna líftæknismiðju í Verinu að Háeyri 1. Líftæknismiðjan í Verinu er sérstaklega sett upp til að skapa vettvang fyrir öflugar rannsóknir og þróunarvinnu á sviði líftækni og lífvirkra efna/afurða. Markmiðið er að aðstaða og gæði rannsókna á rannsóknarstofu Matís standist alþjóðlegan samanburð. Lögð verður mikil áhersla á rannsóknir og þróun tengt nýtingu aukaafurða og afurða unna úr þeim, t.d. prótein, peptíð, fitusýrur, sykrur ofl. Á þennan hátt skapast góð tækifæri fyrir myndun nýrra verkefna og jafnvel fyrirtækja á svæðinu sem í kjölfarið stuðlar að auknum fjölbreytileika í atvinnulífi. (more…)


Háskólasetur Vestfjarða

Háskólasetur Vestfjarða er sjálfseignastofnun sem var formlega stofnsett í mars 2005. Stofnfélagar eru 40 talsins, þar á meðal allir háskólar landsins. Háskólasetrið tók til starfa í Vestrahúsinu á Ísafirði um áramótin 2006. Í sama húsi eru rannsóknarstofnanir eins og Hafrannsóknastofnunin, Matís, Snjóflóðasetur og fleiri. Á hæðinni er líka Fræðslumiðstöð Vestfjarða og mynda stofnanir í húsinu eina heild með sameiginlega móttöku. (more…)


Rannsóknamiðstöð ferðamála

Rannsóknamiðstöð ferðamála gefur út gríðarlega áhugaverðar skýrslur og á vef miðstöðvarinnar eru áhugaverðir tenglar um alþjóðlegar ferðamálarannsóknir. Sjá http://www.fmsi.is/

Rannsóknamiðstöð ferðamála er miðstöð rannsókna í ferðamálafræðum á Íslandi. Rannsóknamiðstöð ferðamála er studd sameiginlega af Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum að Hólum, Samtökum ferðaþjónustunnar og Ferðamálastofu. Allir hafa þessir aðilar sameiginlega hagsmuni af því að efla rannsóknir og menntun í ferðaþjónustu og auka þekkingu í greinum tengdum ferðamálum. Tengsl milli þessara ólíku aðila gefa færi á að samnýta aðstöðu og færni hvors annars og um leið styrkja samband háskólastarfs og atvinnulífs. Rannsóknamiðstöð ferðamála er miðpunktur þessara tengsla og eflir þannig samskipti milli lykilaðila í greininni.

Markmið stofnunarinnar eru þannig að efla rannsóknir og menntun á sviði ferðamála, styrkja tengsl háskólastarfs og atvinnulífs og auka þekkingu um ferðamál gegnum erlent samstarf. Helstu verkefni snúast um rannsóknir í faginu, samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila og atvinnulíf, útgáfu fræðirita og kynningarbæklinga, upplýsingamiðlun, ráðgjöf og að gangast fyrir námskeiðum, ráðstefnum og fyrirlestrum í ferðamálafræðum.


Heilsuferðaþjónusta kennd á Hólum

What we anticipate in our destinations is not holiness or divine visions, but something even more miraculous – the opportunity to feel diffrent from the way we feel at home. It is as if the act of travelling to a certain place in the world entitles us to feel happier and more alive. (Chaline, 2002:67)
Heilsuferðaþjónusta er einn af sprotum ferðaþjónustunnar í dag. Aukinn áhugi almennings á heilsu og vellíðan tengist breyttum lífsstíl og meiri ábyrgð fólks á eigin heilsu í heimi allsnægta. Áhugi á heilsu er þó hreint ekki nýr af nálinni. Hann má m.a. rekja aftur til Grikkja og Rómverja sem stunduðu böð og heilsulindir bæði í læknisfræðilegum tilgangi og til að bæta almenna líðan. Á Íslandi hefur jarðhiti verið notaður til þvotta og baða allt frá landnámsöld. (more…)


Fræðasetur NLFÍ í Hveragerði

Við Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði var árið 1995 sett á stofn fræðasetur í minningu Jónasar Kristjánssonar læknis.

Nýlega var innréttuð íbúð til afnota fyrir fræðimenn úr heilbrigðisstétt sem er boðin afnot af íbúðinni til þess að stunda rannsóknir sínar. Æskilegt er að þessar rannsóknir tengist meðferðarstefnu Heilsustofnunar NLFÍ. Í því samhengi er heilsuvandi einstaklinganna skoðaður með það í huga að líta þurfi á andlegt, líkamlegt og félagslegt ástand í samhengi. Meðferðarstefnan felur m.a. í sér þá viðleitni að koma á og viðhalda eðlilegum og heilbrigðum tengslum á milli einstaklingsins og umhverfis hans og efla varnir líkama og sálar gegn hverskonar vanheilsu og sjúkdómum. (more…)


SPROTINN – atvinnusmiðja í Landbúnaðarháskóla Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands stendur fyrir áhugaverðum verkefnum í viðleitni til að vera í takt við tímana:

Nú þegar efnahagskreppa dynur á okkur vaknar sú áleitna spurning hvernig LbhÍ geti brugðist við til að efla alla nýhugsun hvað varðar atvinnutækifæri á Íslandi. Rannsóknir eru í eðli sínu nýsköpun og þar er LbhÍ öflugur og með skýran fókus en rannsóknir eru um 60% af heildarumsvifum skólans.

Nú í nóvember er verið að hrinda af stað verkefni innan LbhÍ sem ber vinnuheitið Sprotinn – atvinnusmiðja. Hér er um að ræða vettvang starfsfólks og nemenda LbhÍ, atvinnulífs og samstarfsstofnana á sviði matvælaframleiðslu, þjónustulandbúnaðar, náttúrufræða og umhverfismála til atvinnusköpunar

Í upphafi eru verkefni á vegum Sprotans þríþætt:
- Standa fyrir málþingum, þankahryðju- og vinnufundum um atvinnusköpun í okkar geira
- Bjóða fram aðstöðu fyrir einstaklinga (og hópa) sem eru að vinna að hugmyndum. Aðstaða gæti verið skrifstofuaðstaða, rannsóknastofur, tilraunastöðvar, jarðir, skógar, bú, ár og vötn, gróðurhús, verkstæði og vinnusalir eða m.ö.o. öll aðstaða á öllum starfsstöðvum LbhÍ. Jafnframt er boðin fram sú þekking sem býr innan LbhÍ, aðstoð við úrvinnslu á hugmyndum og leiðbeiningar
- Skipuleggja námsleið hjá endurmenntun LbhÍ fyrir einstaklinga sem eru að þróa hugmynd í átt að atvinnustarfsemi. Þetta nám verður í nánu samstarfi við marga aðila víðs vegar um landið.

Frekari upplýsingar gefur
Þorvaldur T. Jónsson thorvaldur@lbhi.is og í síma 433500

Sjá nánar: http://www.lbhi.is (more…)


Háskólasetur Vestfjarða

Háskólasetur Vestfjarða er sjálfseignastofnun sem var formlega stofnsett í mars 2005. Stofnfélagar eru 40 talsins, þar á meðal allir háskólar landsins. Háskólasetrið tók til starfa í Vestrahúsinu á Ísafirði um áramótin 2006. Í sama húsi eru rannsóknarstofnanir eins og Hafrannsóknastofnunin, Matís, Snjóflóðasetur og fleiri. Á hæðinni er líka Fræðslumiðstöð Vestfjarða og mynda stofnanir í húsinu eina heild með sameiginlega móttöku.

Háskólasetur Vestfjarða er tengiliður fyrir Vestfirðinga, sem ætla að tengjast háskóla. Háskólasetur Vestfjarða sér um fjarnám frá háskólunum og býður upp á frumgreinanám. Háskólasetrið er líka tengiliður fyrir háskólafólk utan svæðisins, sem vill tengjast Vestfjörðum á einhvern hátt. Háskólasetrið auglýsir t.d. Vestfirði sem áhugaverðan rannsóknarkost og -stað og býður upp á spennandi námskeið fyrir innlenda og erlenda námsmannahópa, vettvangsskóla og Field Trips. Frá haustinu 2008 býður Háskólasetur Vestfjarða upp á námsleið á meistarastigi í haf- og strandsvæðastjórnun í samvinnu við Háskólann á Akureyri. Loks er Háskólasetur Vestfjarða tengiliður fyrir stofnanir á svæðinu og styrkir þær, t.d. með umsóknargerðum og samvinnu um rannsóknar- og kennsluverkefni á háskólastigi.

Háskólasetur Vestfjarða byrjaði árið 2006 með 3,5 fasta starfsmenn en er nú með 6,5 stöðugildi. Við Háskólasetrið sjálft eru ekki kennslu- eða rannsóknarstöður en það á í náinni samvinnu við allar rannsóknarstofnanir á svæðinu. Háskólasetrið vinnur með þessum stofnunum að því að efla rannsóknir og kennslu á Vestfjörðum.

Háskólasetur Vestfjarða er ung stofnun á háskólastigi á Íslandi. Það vill þróast áfram og taka að sér fleiri verkefni í framtíðinni og aukna ábyrgð á sviði rannsókna og kennslu á háskólastigi.

Sjá nánar : http://hsvest.is/


Háskólinn á Hólum

Háskólinn á Hólum er vísindaleg fræðslu- og rannsóknastofnun á háskólastigi. Háskólinn á Hólum er miðstöð fyrir kennslu og rannsóknir í hrossarækt og hestamennsku, fiskeldi og ferðaþjónustu í dreifbýli.

Meginmarkmið Hólaskóla er að styðja við nýsköpun, framþróun og vöxt í þessum atvinnugreinum með öflugu mennta- og rannsóknarstarfi. Skólinn veitir endurmenntun í þeim fræðigreinum sem kenndar eru við skólann. Hann veitir almenningi fræðslu og þjónustu í krafti þekkingar sinnar. Skólinn leggur áherslu á að þróa starfsemina í anda sjálfbærrar þróunar við nýtingu náttúruauðlinda, virkrar byggðastefnu og nýsköpunar.

(more…)