Sveitarfélög í alþjóðlegum tengsla- og styrkjanetum

Í veffréttum mbl.is er í dag viðtal við Önnu Margréti Guðjónsdóttur, starfsmann Sambands íslenskra sveitarfélaga í Brussel. Hún svarar því játandi hvort sveitarfélögin myndu eflast við inngöngu í Evrópusambandið, því bæði myndu þau þar fá tækifæri til að komast í fleiri og öflugri tengslanet og meiri möguleika á styrkjum, að því gefnu að mótframleg íslenska ríkisins væri til staðar, sjá http://mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/22010


Nýr vefur Matvælastofnunar

Á nýjum vef Matvælastofnunar eru upplýsingar um eftirfarandi og annað: Áburður, Alifuglarækt, Búfjárræk, Dýralæknar, Dýravernd, Dýrasjúkdómar, Fiskeldi, Fiskrækt, Fóðureftirlit, Hvalveiðar, Innflutningur, Lyf og lyfjasala, Lífrænn landbúnaður, Loðdýrarækt, MATVÆLI, Náttúruvernd, Plöntur, Sáðvara, Sláturhús, Svínarækt, Útflutningur, Viðarumbúðir. . .

Sjá: http://www.mast.is/logogreglur/slaturhus


Svártárkot, alþjóðlegt fræðasetur á mörkum óbyggða

Mörgum finnst eflaust í fyrstu undarlegt að heyra um uppbyggingu alþjóðlegs fræðaseturs í Svartárkoti í Bárðardal en hugmyndin er einmitt sprottin út frá þessari sérstöku staðsetningu Svartárkots, en það að vera á mörkum öræfa og mannabyggða gerir staðinn einstæðan. Á annan bóginn höfum við hrikalegar óbyggðir miðhálendisins m.a. sjálft Ódáðahraun – og á hinn bóginn hina merku og fjölbreyttu menningarsögu svæðisins. Þetta bregður sérkennilegum ljóma yfir staðinn og gerir hann að einstaklega forvitnilegu viðfangsefni í nútíma menningarfræðum.
Sjá nánar: http://www.svartarkot.is


Hugmyndahús HR og LHÍ

Hér er tengill á ítarlegt viðtal við Svöfu Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, í sunnudagsblaði Fréttablaðsins (9. nóvember,). Þar reifar hún hugmyndir um “hús fyrir hugsandi hústökufólk” sem Háskólinn í Reykjavík, í samstarfi við Listaháskóla Íslands, ætlar að hleypa af stokkunum á næstu dögum.

Sjá: http://vefblod.visir.is/index.php?s=2545&p=64907


NEED – Northern Environmental Education Development-project

Íslenskt heiti: UNN – Umhverfismennt og Náttúruskólastarf á Norðurslóðum

Fjölþjóðlegt samstarfsverkefni um þróun náttúruskólastarfs, rannsóknarmiðaðrar umhverfismenntar, fullorðinsfræðslu um sjálfbæra þróun og uppbyggingu fræðslutengdrar ferðaþjónustu í grannbyggðum þjóðgarðsins. Erlendir samstarfsaðilar: Háskólinn í Joensuu og Þjóðgarðurinn í Koli (Finnland), Burren GeoPark (Írland) og Þjóðgarðsmiðstöðin í Nordland (Noregur).

Miðpunktur verkefnisins á Íslandi er Vatnajökulsþjóðgarður. Helstu samstarfsaðilar þess hérlendis eru Fræðasetur Háskóla Íslands á Hornafirði (verkefnisstjórn), Þekkingarsetur Þingeyinga (Norðursvæði), Þekkingarnet Austurlands (Austursvæði), Framhaldsskóli Austur Skaftafellssýslu (Suðursvæði) og Kirkjubæjarstofa (Vestursvæði). Á hverju svæði verða jafnframt búnir til staðbundnir klasar með þátttöku þjóðgarðsstarfsmanna, skóla- og rannsóknastofnana (m.a. Náttúrustofa), þróunarfélaga, safna og fyrirtækja.

http://www.hi.is/page/hfn_NEED


Bréf frá Viðari Hreinssyni

Sæl verið þið.

Þetta er að verða sterkur samráðs- og samstarfsvettvangur þar sem kraftar eru lagðir saman. Ég tek undir orð Þorkels um samvinnu og held að þegar sé eitt farið að styrkja annað. Kannski myndast brátt forsendur til að meta af einhverju viti hagræn áhrif af sprotastarfinu, til þess að geta sýnt t.d. pólitíkusum einhverjar tölur, því í augum sumra þeirra (sem ekki geta hugsað neitt í samhengi) eru þær einu röksemdirnar. Allir nýsköpunarsprotar mynda litla læki sem sameinaðir mynda stórfljót, þúsund sinnum aflmeira en Kárahnjúkavirkjun og það eina sem vit er í að virkja.

Það var gaman að sjá þessar tölur frá Selasetrinu og ég er viss um að megi finna fleiri slík dæmi, t.d. frá galdrabatteríinu á Ströndum, þar eru magnaðir frumkvöðlar. Við þurfum að átta okkur á samfélagslegum margfeldisáhrifum verkefna af þessu tagi, og leggja saman kraftana í þróun menningar- og þekkingartengdrar ferðamennsku.

Annað dæmi er Svartárkot, menning náttúra, verkefni sem ég hrinti af stað fyrir þrem árum, í samstarfi við Sigurlínu og Guðrúnu Tryggvadætur, ungar konur sem búa í Svartárkoti í Bárðardal, einum af afskekktustu sveitabæjum á Íslandi. Þar er sauðfjárbú og bærinn er a töfrandi mörkum mannabyggðar og náttúru, auðug menningarsaga og hrikaleg náttúra allt í kring. Þar viljum við byggja rannsókna- og fræðslusetur um íslenska menningu óg náttúru og sambúð manns og náttúru. Þar verða haldin alþjóðleg háskólanámskeið á þessu sviði. Meðan hugmyndin er að sanna sig og ekki hefur verið byggð upp aðstaða í Svartárkoti notum við góða aðstöðu í skóla- og samkomuhúsi sveitarinnar sem heitir Kiðagil. Nánari fróðleik má finna um verkefnið á www.svartarkot.is (meira …)