Flokkar
Um vefinn
Radio nattura.info
Nattura.info er þrá eftir endurnýjun í umræðunni um auðlindir Íslands; þrá eftir brúm á milli sviða faglegrar umfjöllunar, frétta, fróðleiks og frjórra hugmynda um sjálfbæra þróun, sprota-vöxt og aðrar leiðir en stóriðju til virkjunar náttúruauðlinda og mannauðs
Tenglar
- Auðlind
- Bjartsýni
- Brundtland-skýrslan um sjálfbæra þróun (Pdf)
- Byggðastofnun !
- CoolPlanet 2009
- Draumalandið : Bíó
- Dreamland
- Eþikos
- Félag umhverfisfræðinga á Íslandi
- Fornleifastofnun Íslands
- Framtíðarlandið
- Friðun Skjálfandafljóts
- Gagnlegar jarðfræðiglósur !
- Gervigreindarsetur
- Green Map
- Græna kortið
- Háskólasetur Hornafirði
- Háskólasetur Vestfjarða
- Háskólinn á Hólum
- Hlutir: nýjasta tækni
- Hönnunarmiðstöð Íslands
- Hugmyndaráðuneytið
- Hveravefsíðan
- INCA- Iceland Nature Conservation Association
- Innovit
- Keilir
- Klak: Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins
- Kyoto
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Landvernd
- MATÍS
- Náttúra - the song
- náttúra ringtones
- Náttúran.is
- Náttúrufræðistofa Kópavogs
- Náttúrufræðistofnun Íslands
- Náttúrukortið!
- Náttúruvaktin
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Nýsköpun.org
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands
- Opinn borgarafundur
- Paul Hawken
- Rammaáætlun
- Rannsóknamiðstöð ferðamála
- Road to Copenhagen
- Samtök iðnaðarins
- Saving Iceland
- Seeds Iceland
- Smugan
- Staðardagskrá 21
- Stofnun Sæmundar Fróða
- Svartárkot
- Ted.com
- Tilraunavefur H.Í.
- Umhverfisstofnun
- UMÍS ehf. Environice
- VATNAVINIR
- Veðurstofa Íslands
- Wiser Earth (Paul Hawken)
Fimmtudagur, 30. apríl, 2009
Umhverfisviðurkenningar
Miðvikudagur, 29. apríl, 2009
“Að móta byggð” ráðstefna 30.apríl
Þriðjudagur, 28. apríl, 2009
Matvælaöryggi
Mánudagur, 27. apríl, 2009
Fundur um uppbyggingu tengslanetsins
Laugardagur, 25. apríl, 2009
Dagur umhverfisins 25. apríl
Föstudagur, 24. apríl, 2009
Ferðaþjónustuverkefni styrkt
Ferðaþjónustuverkefni styrkt
Föstudagur, 24. apríl, 2009
Eitt hundrað milljónum hefur verið úthlutað til 40 ferðaþjónustuverkefna. Tilhlökkunin er mikil hjá natturu.info að ferðast um landið og skoða allar þessar góðu hugmyndir þegar þær eru komnar á legg. Meðal styrkþega eru; Vatnasetur á Vestfirðum, Jöklaveröld á Höfn, Urðarbrunnur á Hveragerði, Ylströnd og heit laug á Egilsstöðum, Fuglastígur á Norðausturlandi og grænt kort í Ölfusi.
Kryddjurtir til lækninga
Föstudagur, 24. apríl, 2009
Nýjasta grein Kristínar Þóru Kjartansdóttur í Bændablaðinu frá því 8.apríl fjallar um sjö kryddjurtir. Þar tekur hún fyrir nytsemi og lækningamátt jurtanna, enda geta jurtir verið allra meina bót og ekki verra að vita hvaða gagn þær veita gera við inntöku eða áburð.
Sjö innfluttar
– Salvía, lavendel, kamilla…
Kæri lesandi.
Margar af þeim jurtum sem við notum reglulega sem krydd eða
te eru innfluttar. Þær vaxa ekki á Íslandi nema í vernduðu umhverfi,
það er í gróðurskálum, gróðurhúsum eða innanhúss. Margar hverjar
eru algengar í íslensku eldhúsi og virka þá kannski um leið sem lækn-
ingajurtir, án þess þó að kokkurinn geri sér alltaf grein fyrir því. Hér
verða sjö þessara jurta teknar fyrir.
Styrkir til atvinnumála kvenna með góðar hugmyndir
Miðvikudagur, 22. apríl, 2009Fræknar konur fengu góða styrki til atvinnumála kvenna um daginn frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Fullt af frábærum hugmyndum sem skemmtilegt verður að fylgjast með í framtíðinni, þ.á.m. þaraböð á Reykhólum, baðhús á Stykkishólmi og umhverfisvænar byggingaeiningar.
tekið af vef atvinnumálakvenna.is;
Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna
Félags- og tryggingamálaráðuneytið úthlutar 25 milljónum króna til atvinnumála kvenna
Umhverfisvænar byggingareiningar, táknmálsvefur, rjómabú, baðhús í Stykkishólmi, þaraböð á Reykhólum, örlitameðferð til að bæta útlit eftir veikindi eða slys og hólkar úr bylgjupappír sem nota má sem skilrúm eru á meðal þeirra viðskiptahugmynda sem fá úthlutað úr sjóði félags- og tryggingamálaráðuneytis til atvinnumála kvenna að þessu sinni.
Í ár barst 261 umsókn en umsóknir hafa aldrei verið fleiri síðan byrjað var að veita styrkina árið 1991 að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur þáverandi félagsmálaráðherra. Nú eru til úthlutunar 25 milljónir króna. Alls er úthlutað til 38 viðskiptahugmynda og nema hæstu styrkirnir tveimur milljónum króna en þeir lægstu nema 300 þúsundum króna.
Verum vakandi um náttúru Íslands
Þriðjudagur, 21. apríl, 2009
Skaftafell
Umhverfisstofnun hefur í samtarfi við Vatnajökulsþjóðgarð boðað til námskeiðs í náttúruvernd. Fer þetta mikilvæga námskeið fram í Skaftafelli, en svona mikilvægur lærdómur ætti að vera skildu námskeið fyrir alla Íslendinga. Hversu oft hefur maður ekki undrað sig á umgangi margra á þessu fagra landi og græðgina sem fer því miður með allt of marga góða menn, sem myndu selja landið í hendur hæðstbjóðanda án þess að blikka.
Sjá nánar á heimasíðu Umhverfistofnunar www.ust.is og grein hér fyrir neðan frá þeirri góðu síðu.
Flöskur í náttúrunni
Mánudagur, 20. apríl, 2009Það var gaman sem krakki að finna flöskur bak við ruslatunnur sem unglingar höfðu skilið eftir og selja þær í sjoppu og fá sér hlaup. En nú er erfiðara að skila flöskunum, kaupmaðurinn á horninu hættur að taka við glerjum og Sorpa ekki beint í alfaraleið fyrir flesta. Nú þegar umhverfismál skipta framtíð okkar allra og afkvæma okkur svona mikið þá spyr maður sig; “Hvernig standa Íslendingar sig í að endurvinna sorp?” Árangursstuðullinn er örugglega ekkert mjög hér í þeim efnum. En það er aldrei of seint ad byrja, eða jú kannski verður það of seint en er ekki enn of seint, einn tveir og þrír og til samans nú. Opnum augun og tökum öll ábyrgð á umhverfinu. Við þurfum jú öll að búa hér…
Sameiginlegt norrænt skilagjaldskerfi fyrir flöskur?
Norðurlönd ættu að taka upp sameiginlegt skilagjaldskerfi fyrir flöskur og dósir. Þetta var skoðun margra þingmanna sem funduðu í Kaupmannahöfn á föstudag. Sameiginlegt skilagjaldskerfi myndi fyrst og fremst bæta umhverfið - miklu magni af flöskum og dósum er hent út í náttúruna ár hvert og einnig með heimilissorpi.
»Lesa meira
Sorglegur skandall með Helguvík!
Mánudagur, 20. apríl, 2009Lög um Helguvíkurálver samþykkt eins og ekkert hafi í skorist. Eins og ekkert vatn hafi runnið til sjávar síðan það þótti frábær hugmynd af efla stóriðnaðinn á Íslandi. Þegar ekki þótti svo hræðilegt að hendast í að ýta undir svokolluð ruðningsáhrif í hagkeðjunni.
Lóan er komin
Föstudagur, 17. apríl, 2009Nú eru fuglafræðingarnir alveg spenntir að skrá hjá sér komu farfuglanna, loftin eru munstruð af þeim yfir tún og vötn. Lóan þurfti að hvíla sig svolítið og var slöpp sumsstaðar í fyrstu en fór svo að syngja.
Af vef Náttúrustofu Austurlands; www.na.is:
Á Skírdag 9.april síðastliðinn mættu fyrstu 9 heiðlóurnar á Héraðið, þær lentu í túni við bæinn Uppsali í Eiðaþinghá, þeim hefur fjölgað upp frá því. Fyrstu heiðlóurnar voru skráðar 16.april 2008 svo þær eru eitthvað fyrr á ferðinni í ár.
Þá var einn gráhegri á andapollinum á Reyðarfirði á Föstudaginn langa ( 10.april 2009)
Í kvöld: Ímyndir Íslands: íslensk hönnun, kynjamynir og nýir víkingar
Miðvikudagur, 15. apríl, 2009
Furðumynd úr handriti af vef ímynda Íslands: inor.is:"All human cultures articulate, situate themselves by categorizing the world. Such a predicative act necessarily involves a distinction between that which is allowed into the sphere of culture, and that which is excluded; the circumscription of cultural identity proceeds by silhouetting it against a contrastive background of Otherness." - Leerssen & Corby.
Rannsóknarhópurinn Ímyndir Íslands, sjá áhugaverða heimasíðu þeirra: www.inor.is, heldur fund í kvöld klukkan átta í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð: Ímyndir Íslands og aldahvörf. Dagskrá sem hér segir:
Katla Kjartansdóttir: Hinir nýju víkingar
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir: “Íslensk hönnun” sem minjagripur
Þorgerður Þorvaldsdóttir: Kynjaímyndir í fortíð, nútíð og framtíð?
Athugasemdir og viðbrögð:
Guðmundur Oddur Magnússon
Sjá nánar á www.inor.is
www.akademia.is
Koma spillt hagsmunatengslanet í veg fyrir orkuútrás Íslendinga ?
Miðvikudagur, 15. apríl, 2009
Vindmyllur í hafi. Af stórskemmtilegri heimasíðu: www.hlutir.is þar sem má finna fullt af spennandi nýjustu tækni- og vísindauppgötvunum!
Tími nýrrar orkustefnu á Íslandi og hugsanlegrar útrásar orkufyrirtækja og góðra hugmynda til orkunýtingar, virðist bíða uppgjörs við stóriðjustefnuna en einnig uppgjörs við hreppapólitík stjórnmálanna og spillt hagsmunatengslanet sem manni finnst sýkja alla hugsun, allar framkvæmdir í nýsköpun. Það er fátt að frétta af Frumtakssjóðnum sem átti að brúa nýsköpunargjánna og við þurfum yfirleitt á allri okkar þolinmæði að halda þegar vorar og mann langar til að sjá sprotana blómstra.
Hér er fréttaskot frá mbl.is með viðtali við Össur þar sem hann harmar að útrásin skyldi ekki hafa verið í nafni eins fyrirtækis og síðan berst umræðan að spillingunni og í gegnum línurnar má lesa fyrirstöðu þess að skapa í sameiningu nýja orkustefnu fyrir Ísland: Annarleg hagsmunatengsl. Hvers konar uppgjör þarf að eiga sér stað frekara til að hægt verði að koma sér saman um nýja orkustefnu sem tekur farsæld framtíðarinnar og alla þætti hennar inn í myndina? Hvað þarf að gera? Er jákvætt að huga að nýrri útrás, núna orkuútrás? Hvers slags ætti hún þá að vera og undir hvaða formerkjum? Hvernig liti sú aðgerðaráætlun út? Það er spurning dagsins á náttúra.info.
Fyrsta umhverfisvottaða byggingin á Íslandi ! Umhverfisráðuneytið auglýsir eftir tilboðum
Þriðjudagur, 14. apríl, 2009Framkvæmdasýsla ríkisins hefur auglýst eftir tilboðum í byggingu Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri, en hún verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum. Útboðið er unnið samkvæmt nýsamþykktri stefnu ríkisstjórnarinnar um vistvæn innkaup.
Í stefnu ríkisstjórnarinnar er sagt fyrir um hvernig samþætta eigi umhverfissjónarmið í innkaupum hjá ríkinu. Íslenska ríkið kaupir vörur, þjónustu og verk fyrir meira en 100 milljarða króna á ári sem er um fjórðungur af útgjöldum ríkisins. Vistvæn innkaup taka meðal annars til bygginga.
Við hönnun tveggja verkefna á vegum umhverfisráðuneytisins var ákveðið að hafa vistvænar aðferðir að leiðarljósi og leitast við að votta byggingarnar sem vistvænar. Þær byggingar sem um ræðir eru gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri og þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Meðal markmiða við hönnun bygginganna er að takmarka neikvæð umhverfisáhrif, skapa heilnæman vinnustað, minnka rekstrarkostnað og stuðla að góðri ímynd. Stefnt er að því að byggingarnar verði vottaðar sem vistvæn mannvirki samkvæmt vottunarkerfi BREEAM (British Building Research Establishment Environmental Assessment Method).
»Lesa meira

















