Umhverfisviðurkenningar

Fimmtudagur, 30. apríl, 2009

 

Íslenska Gámafélagið

Íslenska Gámafélagið

Umhverfisráðuneytið veitti umhverfisviðurkenningar á degi umhverfisins 25.apríl. Kuðungurinn var afhentur og varðliðar umhverfisins heiðraðir. 

 

Tekið af vef umhverfisráðuneytisins;

Íslenska Gámafélagið hlaut Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, sem var afhentur á málþingi um græn störf á Degi umhverfisins. Við sama tækifæri voru nemendur úr Snælandsskóla og Grunnskóla Siglufjarðar útnefndir varðliðar umhverfisins.


»Lesa meira


“Að móta byggð” ráðstefna 30.apríl

Miðvikudagur, 29. apríl, 2009

 

Sjómannsbýli í Reykjavík 1836 (http://wikimedia.org)

Sjómannsbýli í Reykjavík 1836 (http://wikimedia.org)

Að móta byggð – Ráðstefna Skipulagsstofnunar

 

 

Að móta byggð – Ráðstefna Skipulagsstofnunar verður haldin fimmtudaginn 30. apríl n.k. en hún er í  samstarfi við: Arkitektafélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skipulagsfræðingafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands.

Sjá nánari upplýsingar um skráningu og DAGSKRÁ. 

Tími: Fimmtudagur 30. apríl kl. 8:30 – 17:00

 

Staður: VeisluTurninn Smáratorgi 3, 20. hæð, Kópavogi – aðkoma frá Smáratorgi


»Lesa meira


Matvælaöryggi

Þriðjudagur, 28. apríl, 2009

 

Móðir og synir (http://6000k.net)

Móðir og synir (http://6000k.net)

Nú þegar umræða um svínaflensu stendur sem hæst er ekki frá að maður lesi greinar um matvælaöryggi með nánari eftirtekt. Á síðu norden.org er grein um að nú hafi norðurlönd lagt aukna áherslu á matvælaöryggi á heimsvísu. 

 

Norðurlönd stuðla að alþjóðlegu matvælaöryggi

 

Norðurlöndin leggja mikið af mörkum til að auka matvælaöryggi á heimsvísu. Loftslagsbreytingarnar eru ógnun við aðgengi að matvælum, sérstaklega í fátækari hlutum heimsins. Mikilvægar fæðutegundir eru í útrýmingarhættu til að mynda vegna eyðumerkurmyndanna og flóða.


»Lesa meira


Fundur um uppbyggingu tengslanetsins

Mánudagur, 27. apríl, 2009

 

Tengslanet

Tengslanet

nattura.info fékk gott boð. Sjá auglýsingu fyrir neðan;

 

 

Kæra áhugafólk um samfélagsábyrgð og önnur góð mál

 

Reynslan erlendis sýnir að margt það besta á sviði samfélagsábyrgðar kemur einfaldlega af því að fyrirtæki og aðrir aðilar koma saman til þess ræða saman með markvissum hætti og læra hvor af öðrum. Á Norðurlöndunum starfa t.d. fjöldinn allur af slíkum tengslanetum.  

 

Eþikos vill bjóða þér að taka þátt í að koma á fót tengslaneti sem verður vettvangur umræðu, skoðanaskipta og fræðslu um samfélagsábyrgð hér á landi.

 

Í þeim tilgangi viljum við bjóða þér á fund um uppbyggingu tengslanetsins sem verður haldinn í stofu 337 í Ofanleiti og hefst  kl. 11.00 þann 28. apríl.

 

Til þess að opna fyrir umræður mun Hanna Valdís Þorsteinsdóttir flytja erindi um sína reynslu og helstu alþjóðlegu verkefnin á þessu sviði, eða Global CompactSameinuðu þjóðanna og Global Reporting Initiative, en hún hefur unnið að málefnum tengdum SÁF jafnt hjá GRI og ING bankanum í Evrópu.


»Lesa meira


Dagur umhverfisins 25. apríl

Laugardagur, 25. apríl, 2009

 

Verndum jörðina

Verndum jörðina

Umhvefisdagurinn er í dag og er hann tileinkaður grænum störfum og atvinnuuppbyggingu. Málþing verður haldið í Iðnó í dag kl. 13.00 – 15.00 og verða þar 7 fyrirtæki sem ræða m.a um framtíðarsýn sína. Eftir þingið verða svo pallborðsumræður.

 

Kuðungurinn, umhverfisviðurkenning umhverfisráðherra verða afhent. Spennandi verður að sjá hverjir hafa staðið sig vel í þágu umhverfismála í ár. Einnig verða afhvent verðlaun um Varðliða umhverfisins. En það eru verkefnasamskipti sem grunnskólabörn 5-10 bekkjar taka þátt í.

(tekið af vef umhverfisráðuneytisins) 

Græn störf – málþing um vistvæna nýsköpun

Á degi umhverfisins 25. apríl boða umhverfisráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félag umhverfisfræðinga til málþings um Græn störf og vistvænar áherslur í atvinnuuppbyggingu. Málþingið fer fram í Iðnó frá kl. 13:00 til 15:00.

Á málþinginu munu sjö fyrirtæki kynna starfsemi sína og framtíðarsýn. Þá verður efnt til pallborðsumræðna um þau tækifæri sem bjóðast íslenskum fyrirtækjum á þessu sviði.


»Lesa meira


Ferðaþjónustuverkefni styrkt

Föstudagur, 24. apríl, 2009

 

Vatnajökull (http://www.viki.is/joklar/Vatnajökull.html)

Vatnajökull (http://www.viki.is/joklar/Vatnajökull.html)

Eitt hundrað milljónum hefur verið úthlutað til 40 ferðaþjónustuverkefna. Tilhlökkunin er mikil hjá natturu.info að ferðast um landið og skoða allar þessar góðu hugmyndir þegar þær eru komnar á legg. Meðal styrkþega eru; Vatnasetur á Vestfirðum, Jöklaveröld á Höfn, Urðarbrunnur á Hveragerði, Ylströnd og heit laug á Egilsstöðum, Fuglastígur á Norðausturlandi og grænt kort í Ölfusi. 

 

Sjá nánar á vef iðnaðarráðuneytisins 


Kryddjurtir til lækninga

Föstudagur, 24. apríl, 2009

 

Lavender

Lavender eða Lofnarblóm

Nýjasta grein Kristínar Þóru Kjartansdóttur í Bændablaðinu frá því 8.apríl fjallar um sjö kryddjurtir. Þar tekur hún fyrir nytsemi og lækningamátt jurtanna, enda geta jurtir verið allra meina bót og ekki verra að vita hvaða gagn þær veita gera við inntöku eða áburð.

 

 

Sjö innfluttar
– Salvía, lavendel, kamilla…

Kæri lesandi.
Margar af þeim jurtum sem við notum reglulega sem krydd eða
te eru innfluttar. Þær vaxa ekki á Íslandi nema í vernduðu umhverfi,
það er í gróðurskálum, gróðurhúsum eða innanhúss.  Margar hverjar
eru algengar í íslensku eldhúsi og virka þá kannski um leið sem lækn-
ingajurtir, án þess þó að kokkurinn geri sér alltaf grein fyrir því. Hér
verða sjö þessara jurta teknar fyrir.


»Lesa meira


Gleðilegt sumar

Fimmtudagur, 23. apríl, 2009

 

Jaðrakan (Limosa limosa) - Black-tailed Godwit (http://6000k.net)

Jaðrakan (Limosa limosa) - Black-tailed Godwit (http://6000k.net)

nattura.info óskar öllum lesendum gleðilegs sumars.


Styrkir til atvinnumála kvenna með góðar hugmyndir

Miðvikudagur, 22. apríl, 2009
Þari (ljósmynd tekinn af www.ljosmyndari.is)

Þari (ljósmynd tekinn af www.ljosmyndari.is)

Fræknar konur fengu góða styrki til atvinnumála kvenna um daginn frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Fullt af frábærum hugmyndum sem skemmtilegt verður að fylgjast með í framtíðinni, þ.á.m.  þaraböð á Reykhólum, baðhús á Stykkishólmi og umhverfisvænar byggingaeiningar.

tekið af vef atvinnumálakvenna.is;

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna
Félags- og tryggingamálaráðuneytið úthlutar 25 milljónum króna til atvinnumála kvenna

Umhverfisvænar byggingareiningar, táknmálsvefur, rjómabú, baðhús í Stykkishólmi, þaraböð á Reykhólum, örlitameðferð til að bæta útlit eftir veikindi eða slys og hólkar úr bylgjupappír sem nota má sem skilrúm eru á meðal þeirra viðskiptahugmynda sem fá úthlutað úr sjóði félags- og tryggingamálaráðuneytis til atvinnumála kvenna að þessu sinni.

Í ár barst 261 umsókn en umsóknir hafa aldrei verið fleiri síðan byrjað var að veita styrkina árið 1991 að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur þáverandi félagsmálaráðherra. Nú eru til úthlutunar 25 milljónir króna. Alls er úthlutað til 38 viðskiptahugmynda og nema hæstu styrkirnir tveimur milljónum króna en þeir lægstu nema 300 þúsundum króna.


»Lesa meira


Verum vakandi um náttúru Íslands

Þriðjudagur, 21. apríl, 2009
Skaftafell

Skaftafell

Umhverfisstofnun hefur í samtarfi við Vatnajökulsþjóðgarð boðað til námskeiðs í náttúruvernd. Fer þetta mikilvæga námskeið fram í Skaftafelli, en svona mikilvægur lærdómur ætti að vera skildu námskeið fyrir alla Íslendinga. Hversu oft hefur maður ekki undrað sig á umgangi margra á þessu fagra landi og græðgina sem fer því miður með allt of marga góða menn, sem myndu selja landið í hendur hæðstbjóðanda án þess að blikka.

Sjá nánar á heimasíðu Umhverfistofnunar www.ust.is og grein hér fyrir neðan frá þeirri góðu síðu.


»Lesa meira


Flöskur í náttúrunni

Mánudagur, 20. apríl, 2009
Grænar flöskur í grænni náttúru

Grænar flöskur í grænni náttúru

Það var gaman sem krakki að finna flöskur bak við ruslatunnur sem unglingar höfðu skilið eftir og selja þær í sjoppu og fá sér hlaup. En nú er erfiðara að skila flöskunum, kaupmaðurinn á horninu hættur að taka við glerjum og Sorpa ekki beint í alfaraleið fyrir flesta. Nú þegar umhverfismál skipta framtíð okkar allra og afkvæma okkur svona mikið þá spyr maður sig; “Hvernig standa Íslendingar sig í að endurvinna sorp?”   Árangursstuðullinn er örugglega ekkert mjög hér í þeim efnum. En það er aldrei of seint ad byrja, eða jú kannski verður það of seint en er ekki enn of seint, einn tveir og þrír og til samans nú. Opnum augun og tökum öll ábyrgð á umhverfinu. Við þurfum jú öll að búa hér…
Sameiginlegt norrænt skilagjaldskerfi fyrir flöskur?

Norðurlönd ættu að taka upp sameiginlegt skilagjaldskerfi fyrir flöskur og dósir. Þetta var skoðun margra þingmanna sem funduðu í Kaupmannahöfn á föstudag. Sameiginlegt skilagjaldskerfi myndi fyrst og fremst bæta umhverfið – miklu magni af flöskum og dósum er hent út í náttúruna ár hvert og einnig með heimilissorpi.


»Lesa meira