Björk er nýsköpunarverkefni í anda finnsku leiðarinnar

Björk er nýsköpunarverkefni í anda finnsku leiðarinnar að mati Stefáns Ólafssonar prófessors við Háskóla Íslands. Þetta kom fram í viðtali við Stefán í Silfri Egils þar sem hann útskýrði hvernig Finnar unnu sig út úr mikilli kreppu í upphafi tíunda áratugarins á síðustu öld.

Kreppan kom í kjölfar bankahruns eins og á Íslandi og þess að Sovétríkin sálugu dóu drottni sínum. Afleiðingarnar fyrir finnsku þjóðina urðu m.a. að hagvöxtur drógt saman um 10% og atvinnuleysið fór í 18%.

Í Silfri Egils nefndi Stefán þrjú höfuðatriðin í því hvernig Finnar leystu sín vandamál. Í fyrsta lagi sóttu þeir um aðilda að Evrópusambandinu og þeir gerðu það árið 1992 í miðri kreppu sinni. (more…)


Landsbyggðin lifi

Landsbyggðin lifi er hreyfing fólks á Íslandi sem vill örva og efla byggð um land allt.

Slæm staða efnahagsmála og þær aðgerðir sem hefur verið gripið til varðar alla landsmenn. Sérstaklega kemur ástandið illa við aðstæður láglaunafólks, og aðstæður margra þeirra sem á síðustu árum hafa tekið lán til að koma sér upp þaki yfir höfuðið eða til að byggja upp framleiðslu, sem er mikilvæg fyrir atvinnustigið.

Það er skylda samfélagsins, ríkis, sveitarfélaga og einstaklinga að koma þeim til aðstoðar strax sem illa fara út úr þessum hremmingum. (more…)


Rannsóknarborunum að Þeistareykjum frestað

Landsvirkjun, Alcoa og Þeistareykir ehf, hafa í sameiningu ákveðið að fresta rannsóknarborunum að Þeistareykjum um sinn. Þetta er meðal annars gert vegna þess óvissuástands sem ríkir á fjármálamörkuðum. Ákvörðun um framhald borana mun bíða fram til haustsins 2009.

Landsvirkjun, Alcoa og Þeistareykir ehf. hafa unnið sameiginlega að undirbúningi jarðvarmavirkjana á Norðausturlandi vegna orkusölu til fyrirhugaðs álvers Alcoa á Bakka við Húsavík. Þetta samstarf hefur byggst á viljayfirlýsingu milli Landsvirkjunar og Alcoa frá í sumar.  Um verkefnið hefur verið náin samvinna við sveitarfélögin Norðurþing, Þingeyjarsveit og Skútustaðahrepp sem lagt hafa fram fjármuni og vinnu í undirbúning þess. (more…)


Ráðstefna um atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs

Haldin á Höfn og Smyrlabjörgum í Suðursveit 7. og  8. nóv.  2008 (more…)


Hugleiðingar Einars Erlendssonar um nýsköpun

Í gegn um tíðina hafa reglulega verið gerð áttök í nýsköpun í íslensku samfélagi. Fyrir u. þ. b. áratugi síðan ákvað t. d. þáverandi ríkisstjórn að setja 600 mill. í nýsköpun á þremur árum. Það sem mjög oft hefur átt sér stað er að í kring um slík áttök eru byggð upp opinber kerfi, t.d. Impra og Nýsköpunarsjóður.

Ég hef verið viðriðin nýsköpun í um 15 ár. Því hef ég reynslu af þvi að leita til opinberra aðila varðandi styrki og aðstoð. Undantekningarlítið er umsóknarfelið langt, eyðublöð torskilin og það hefur jafnvel verið gengið svo langt að mæla með því við mig af sérfræðingum að fylla umsóknir út þannig að 12 ára unglingur geti skilið þær, þar sem þeir sem færu yfir umsóknina væru ekki betur í stakk búnir að lesa úr þeim. (more…)


Hugað að styrkingu sprotafyrirtækja

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að til greina kæmi að Atvinnuleysistryggingasjóður tæki upp samstarf við Samtök iðnaðarins og Samtök sprotafyrirtækja. Þannig gæti skapast um hundrað ný störf í sprotafyrirtækjum fyrir fólk sem misst hefur vinnuna. Ráðherra vitnaði þannig í ályktun sem samþykkt var á fjölmennum fundi Samtaka iðnaðar-, íslenskra líftæknifyrirtækja-, sprotafyrirtækja-, upplýsingafyrirtækja og aðildarfyrirtækja þeirra. Á fundinum var lögð áhersla á að treysta stoðir nýsköpunar í fyrirtækjunum og nýta þann mannauð sem losnar í efnahagsþrengingunum sem nú standa yfir. (more…)


Álfyrirtæki um allan heim fresta framkvæmdum

Blikur á lofti um álversframkvæmdir
frá visir.is

Allir bankarnir þrír sem hugðust lána til álversframkvæmda í Helguvík eru komnir í þrot og ríkir óvissa um fjármögnun verkefnisins. Blikur er einnig á lofti um undirbúning álvers við Húsavík.

Byrjað var að steypa undirstöður kerskála í Helguvík um miðjan síðasta mánuð. Norðurál fjármagnar sjálft upphaf framkvæmda með eigin fé en síðan var ætlunin að þrír bankar kæmu að lánveitingu, Kaupþing, Landsbankinn og Fortis-bankinn. Þeir eru hins vegar allir komnir í þrot og ríkir nú óvissa um fjármögnun, samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2. Talsmaður Norðuráls, Ágúst Hafberg, kvaðst engu að síður bjartsýnn í dag en viðurkenndi að verið væri að endurmeta verkefnið, bæði kostnað og fjármögnun.

Undirbúningur álvers á Bakka við Húsavík er sömuleiðis í óvissu vegna fjármálakreppunnar. Forstjórar Landssvirkjunar og Alcoa á Íslandi, þeir Friðrik Sophusson og Tómas Már Sigurðsson, ræddu framhald verkefnisins í dag en þeir þurfa fyrir mánaðamót að ganga frá viljayfirlýsingu sem mótar næstu skref. Í viðtali við Stöð 2 vill Tómas Már ekki svara því hvort dregið verði úr kraftinum á verkefninu en segir að blikur séu á lofti.

Þótt álverð hafi lækkað verulega frá því það var hæst fyrr á árinu er það þó enn 36 prósentum hærra en það var daginn sem Alcoa ákvað að reisa álverið á Reyðarfirði árið 2003. Álfyrirtæki um allan heim eru hins vegar að fresta framkvæmdum.


Tengla-tími

Tími miðlægra duldra gagnagrunna er kannski að líða…

Stund samtengdra opinna gagnagrunna að renna upp…

(more…)


Hugað að styrkingu sprotafyrirtækja

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að til greina kæmi að Atvinnuleysistryggingasjóður tæki upp samstarf við Samtök iðnaðarins og Samtök sprotafyrirtækja. Þannig gæti skapast um hundrað ný störf í sprotafyrirtækjum fyrir fólk sem misst hefur vinnuna, segir á vef Samtaka iðnaðarins. Ráðherra vitnaði þannig, segir þar,  í ályktun sem samþykkt var á fjölmennum fundi Samtaka iðnaðar-, íslenskra líftæknifyrirtækja-, sprotafyrirtækja-, upplýsingafyrirtækja og aðildarfyrirtækja þeirra. Á fundinum var lögð áhersla á að treysta stoðir nýsköpunar í fyrirtækjunum og nýta þann mannauð sem losnar í efnahagsþrengingunum sem nú standa yfir.

(more…)


Bréf frá Þorkatli

Bréf frá Þorkatli Sigurlaugssyni, framkvæmdarstjóra Þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík:

Það er gott að benda á jákvæðu atriðin og alla möguleikana sem við Íslendingar höfum. Við eigum einmitt að hætta að tala um neikvæðu hlutina sem hvort sem er komast varla á dagskrá núna svo sem stórvirkjanir og álver, því ekkert fjármagn fæst í það hvort sem er, heldur frekar tala um þessi mörgu góðu mál.

Við eigum alls staðar að gefa góða ímynd af landinu, ekki þá ímynd að hér sé að verða eitt risastórt álframleiðsluþjóðfélag.  Þá fælum við bara útlendinga frá landinu.   Við eigum ekki að tala um að búið að sé eyðileggja náttúruna, það er sem betur fer ekki búið að skaða hana varanlega ennþá.

Við eigum að benda á alla góðu möguleikana, tækifærin, hreinsunina af því að losna við áhættusækna útrásarvíkinga sem sóuðu fjármunum þjóðarinnar og ekki síst að losna við þann draum að geta orði fjármálamiðstöð heimsins.  Við höfum augljóslega enga kunnáttu né kúltúr í slíkt.

(more…)


Dreamland – A Self-Help Manual for a Frightened Nation

Dreamland

Dreamland

Iceland is experiencing an environmental catastrophe. In the last two years, Alcoa and Rio Tinto´s irresponsible business strategy has already resulted in the destruction of glacial rivers, canyons and over 60 ancient waterfalls and valleys in Iceland. After an intense fight and, despite growing public opposition, the aluminium giants managed to pull off the build of Europe’s largest hydroelectric power plants, Kárahnjúkar, directly affecting over 1000 km2 of
spectacular untouched nature.

The future belongs to those who prepare for it.

Imagine putting a massive power plant, dam and reservoir plus a 400 thousand ton aluminum smelter in an area comparable to the Lake District, both in beauty and size. That’s what has happened in Iceland and a similar fate will surely follow in other remote and treasured areas of Europe, unless something changes and a new mentality adopted.

To the horror of the informed observers (a majority of the Icelandic public), this was just the beginning.

The expansion plans include the destruction of even more waterfalls, glacial rivers and some of the main breeding sites for several rare European bird species. The wilderness now under threat is stunning to behold and home to an incredibly diverse and fragile ecosystem. Its waterfalls, millions of years in the making, are disappearing into dams and reservoirs.

(more…)